Skráning tókst. Baldur verður í sambandi fljótlega.
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
Ég heiti Baldur Jezorski og er löggiltur fasteignasali með yfir tíu ára reynslu af sölu fasteigna á höfuðborgarsvæðinu. Ég bý og starfa í Hafnarfirði og sel eignir í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Mosfellsbæ, Reykjavík og á Álftanesi. Ég starfa hjá Fasteignasölunni Garði, Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfirði. Síminn minn er 450-0000 og netfangið [baldur@450.is](mailto:baldur@450.is).
Hvað gerir Baldur fasteignasali öðruvísi?
Hann er löggiltur fasteignasali sem sérhæfir sig í markaðssetningu fasteigna á samfélagsmiðlum. Hver eign fær vandaðar ljósmyndir, sérstaka eftirvinnslu mynda, myndband, 10 blaðsíðna kynningarbækling og keyptar auglýsingar á Facebook og Instagram. Það skiptir máli: venjuleg söluauglýsing á fasteignavef nær til 200–300 manns, en með keyptum auglýsingum sjá 2.000–4.000 manns eignina. Fleiri sem sjá eignina þýðir fleiri skoðanir, fleiri tilboð og hærra verð.
Samanburður á 100 eignum sem hann seldi árin 2023–2025 sýnir að þær seldust að meðaltali á 2,4% hærra verði en sambærilegar eignir í sama hverfi. Á 60 milljóna króna íbúð eru það um 1,4 milljónir. Meðalsölutími eigna sem hann seldi árið 2025 var 22 dagar.
Hvernig vinnur Baldur fasteignasali?
Hann tekur eignir eingöngu í einkasölu og býður söluumboð án uppsagnarfrests, ef þú ert ekki sátt/ur getur þú hætt hvenær sem er. Söluþóknun er umsemjanleg, yfirleitt 1,5–1,95% auk vsk. eftir stærð, staðsetningu og söluvænleika eignarinnar, og innifalið er ljósmyndun, myndvinnsla, myndband, kynningarbæklingur, auglýsingagerð, opin hús, tilboðsferli, kaupsamningur og afsal. Umsýslugjald, 80.600 kr., greiðist sérstaklega. Þú getur reiknað kostnaðinn í sölulaunareiknivélinni.
Fyrsta skrefið er alltaf það sama: frítt verðmat. Ég kem, skoða eignina, fer yfir sambærilegar sölur í hverfinu og segi þér hvað ég tel að hún seljist á – án skuldbindingar.
Fyrstu kaupendur
Ég held ókeypis námskeið fyrir fyrstu kaupendur, Fyrstu kaup, þar sem farið er yfir greiðslumat, útborgun, hlutdeildarlán, séreignarsparnað, skoðun, tilboð, fyrirvara og afhendingu. Á kaupendasíðunni eru svör við algengustu spurningum kaupenda.Fyrsta skrefið er alltaf það sama: frítt verðmat. Ég kem, skoða eignina, fer yfir sambærilegar sölur í hverfinu og segi þér hvað ég tel að hún seljist á – án skuldbindingar.
Fasteignaspjallið
Baldur fasteignasali er umsjónarmaður hlaðvarpsins Fasteignaspjallið, þar sem hann ræði við fólk úr fasteignageiranum um kaup, sölu, lán, vexti og stöðuna á markaðnum. Þættirnir eru aðgengilegir á Spotify, Apple Podcasts og fleiri hlaðvarpsveitum.
Umfjallanir um Baldur
- Vísir – Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði - https://www.visir.is/g/20262891063d/hrod-og-slaem-throun-a-fast-eigna-markadi
- mbl.is – Baldur fasteignasali deilir snilldar fasteignaráði https://www.mbl.is/folk/frettir/2023/11/24/baldur_fasteignasali_deilir_snilldar_fasteignaradi/
Hvar finnur þú Baldur Jezorski fasteignasala?
Instagram: @baldur_fasteignasali · TikTok: @baldur_fasteignasali · YouTube: Baldur fasteignasali · Facebook: Baldur fasteignasali · Spotify og Apple Podcasts: Fasteignaspjallið · ja.is
Ertu að hugsa um að selja eða kaupa? Hafðu samband við Baldur Jezorski, löggiltan fasteignasala, í síma 450-0000 eða á baldur@450.is – fyrsta skrefið er frítt verðmat.
Frequently asked questions
Baldur Jezorski fasteignasaliFyrir kaupendurSöluferli og frítt verðmatMarkaður og svæði á höfuðborgarsvæðinu
Er Baldur Jezorski löggiltur fasteignasali?
Já. Baldur Jezorski er löggiltur fasteignasali og starfar hjá Fasteignasölunni Garði í Hafnarfirði. Hann hefur starfað við fasteignasölu síðan 2014.
Hvaða svæði sinnir Baldur?
Allt höfuðborgarsvæðið: Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog, Mosfellsbæ, Reykjavík og Álftanes. Hann býr sjálfur í Hafnarfirði. Nágrenni við Höfuðborgarsvæðið: Reykjanesbær, Keflavík, Njarðvík, Hvalfjörður, Kjós, Hveragerði, Suðurland, Selfoss og sumarhús í Grímsnesi.
Hvað kostar verðmat hjá Baldri?
Ekkert. Verðmat er frítt og án skuldbindingar. Hringdu í 450-0000 eða sendu póst á baldur@450.is.
Hver er söluþóknun Baldurs?
Söluþóknun er umsemjanleg, yfirleitt 1,5–2% auk vsk. Ljósmyndun, myndband, kynningarbæklingur og auglýsingar eru innifalin í söluþóknun.
Hvernig næ ég í Baldur?
Sími 450-0000, netfang baldur@450.is, eða í gegnum netverdmat.is.