Baldur Jezorskilöggiltur fasteignasali · 450-0000

Hvernig fæ ég hærra verð fyrir eignina mína?

Birt 12. september 2026 · Baldur Jezorski
Hvernig fæ ég hærra verð fyrir eignina mína?

Hærra söluverð ræðst fyrst og fremst af því hversu margir sjá eignina. Svona margfaldar rétt markaðssetning fjölda áhugasamra og eykur líkur á að hærra verð fáist fyrir eignina.

Hvernig fæ ég hærra verð fyrir eignina mína?

Stutta svarið: Hærra söluverð ræðst fyrst og fremst af því hversu margir sjá eignina þína. Því fleiri sem sjá hana, því meiri líkur eru á að þessi eini kaupandi sem er tilbúinn að borga mest fyrir hana komi að skoða og geri tilboð. Vandaðar ljósmyndir og keyptar auglýsingar á samfélagsmiðlum geta tífaldað þann fjölda – og skila að meðaltali um 2,4% hærra söluverði. Það sem þú sem seljandi gerir sjálf/ur – að þrífa, létta á eigninni og laga smáatriðin – skiptir máli, en það vegur minna en markaðssetningin.

## Af hverju er markaðssetningin stærsti þátturinn?

Ef eignin þín er eingöngu skráð á fasteignavefina, án þess að vera auglýst sérstaklega, ertu að treysta á eitt: að kaupandinn sé staddur inni á fasteignavef nákvæmlega þá daga sem eignin er ný í sölu, og að hann leiti að réttum herbergjafjölda, réttu póstnúmeri og réttu verðbili.

Allir hinir sjá hana aldrei. Fólk sem er „aðeins að spá“, fólk sem var búið að gefast upp á leitinni, fólk sem hefði flutt í hverfið ef rétta eignin hefði birst – sá hópur er margfalt stærri en hópurinn sem er virkur í leit þessa tilteknu viku. Og það er einmitt í þeim hópi sem hæsta tilboðið leynist oftast.

Þegar eign er kynnt með keyptum auglýsingum á Facebook og Instagram, eins og Baldur fasteignasali sérhæfir sig í, er eignin borin fyrir augu fólks á réttu svæði sem var ekki að leita þennan daginn. Það er munurinn á 200–300 flettingum og 2.000–4.000 flettingum.

Sá munur mælist í söluverði. Samanburður á 100 eignum sem seldust á árunum 2023–2025 sýnir að eignir sem voru markaðssettar með vönduðum myndum og keyptum auglýsingum seldust á að meðaltali 2,4% hærra verði en sambærilegar eignir sem voru eingöngu skráðar á fasteignavefina. Á 80 milljóna króna eign eru það tæpar tvær milljónir – margfalt hærri upphæð en auglýsingarnar kosta.

Fleiri sem sjá = fleiri tilboð = hærra verð

Keðjan er einföld og hún er alltaf eins:

  1. Fleiri sjá eignina. Auglýsingin nær til fólks sem hefði annars aldrei rekist á hana.

  2. Fleiri fyrirspurnir berast. Hluti þeirra sem sjá hana hefur samband.

  3. Fleiri mæta í opið hús. Full stofa af fólki breytir sálfræðinni í herberginu.

  4. Fleiri tilboð berast. Og þegar tilboðin eru fleiri en eitt myndast samkeppni.

  5. Verðið hækkar. Það þarf ekki tíu kaupendur – það þarf einn sem vill eignina virkilega.

## Hvað get ég gert sjálf/ur gert til að hækka virði eignarinnar?

Þetta eru atriðin sem kosta lítið og skila mestu:

  • Byrjaðu að flytja. Pakkaðu niður fötum og dóti sem þú þarft ekki næstu vikurnar. Léttari eign virkar stærri og bjartari.

  • Þrífðu – og svo aðeins meira. Sérstaklega gler og glugga. Skítugt gler lætur kaupanda líða eins og illa hafi verið hugsað um húsið og að það sé kominn tími á að endurnýja gluggana.

  • Endurnýjaðu gömul og gulnuð rofa og tengla. Ódýrt, tekur stuttan tíma og sést strax á myndum.

  • Málaðu þar sem sést verulega á veggjum. Ekki alla íbúðina – bara þar sem þess er þörf.

Í stuttu máli

  • Hærra verð fæst með því að fleiri sjái eignina, ekki með því að gera hana fullkomna.

  • Skráning á fasteignavef ein og sér nær aðeins til þeirra sem eru í virkri leit þá vikuna.

  • Vandaðar myndir og keyptar auglýsingar á samfélagsmiðlum lyfta fjölda flettinga úr 200–300 í 2.000–4.000.

  • Vel markaðssettar eignir seldust að meðaltali 2,4% hærra í samanburði á 100 eignum 2023–2025.

  • Þrif, tiltekt og smáatriði kosta lítið og skila sér; samkeppni milli kaupenda er það eina sem hækkar verðið í raun.

    Ertu ekki viss? Baldur fasteignasali bíður frítt verðmat og gefur þér ráðleggingar hvað borgar sig að gera áður en eignin fer á sölu. baldur@450.is / Beinn sími 450-0000

Tags:

Algengar spurningar

Hvernig fæ ég hærra verð fyrir eignina mína?

Stutta svarið: Hærra söluverð ræðst fyrst og fremst af því hversu margir sjá eignina þína. Því fleiri sem sjá hana, því meiri líkur eru á að þessi eini kaupandi sem er tilbúinn að borga mest fyrir hana komi að skoða og geri tilboð. Vandaðar ljósmyndir og keyptar auglýsingar á samfélagsmiðlum geta tífaldað þann fjölda – og skila að meðaltali um 2,4% hærra söluverði. Það sem þú sem seljandi gerir sjálf/ur – að þrífa, létta á eigninni og laga smáatriðin – skiptir máli, en það vegur minna en markaðssetningin.

Af hverju er markaðssetningin stærsti þátturinn?

Ef eignin þín er eingöngu skráð á fasteignavefina, án þess að vera auglýst sérstaklega, ertu að treysta á eitt: að kaupandinn sé staddur inni á fasteignavef nákvæmlega þá daga sem eignin er ný í sölu, og að hann leiti að réttum herbergjafjölda, réttu póstnúmeri og réttu verðbili. Allir hinir sjá hana aldrei. Fólk sem er „aðeins að spá“, fólk sem var búið að gefast upp á leitinni, fólk sem hefði flutt í hverfið ef rétta eignin hefði birst – sá hópur er margfalt stærri en hópurinn sem er virkur í leit þessa tilteknu viku. Og það er einmitt í þeim hópi sem hæsta tilboðið leynist oftast. Þegar eign er kynnt með keyptum auglýsingum á Facebook og Instagram, eins og Baldur fasteignasali sérhæfir sig í, er eignin borin fyrir augu fólks á réttu svæði sem var ekki að leita þennan daginn. Það er munurinn á 200–300 flettingum og 2.000–4.000 flettingum. Sá munur mælist í söluverði. Samanburður á 100 eignum sem seldust á árunum 2023–2025 sýnir að eignir sem voru markaðssettar með vönduðum myndum og keyptum auglýsingum seldust á að meðaltali 2,4% hærra verði en sambærilegar eignir sem voru eingöngu skráðar á fasteignavefina. Á 80 milljóna króna eign eru það tæpar tvær milljónir – margfalt hærri upphæð en auglýsingarnar kosta.

Hvað get ég gert sjálf/ur gert til að hækka virði eignarinnar?

Þetta eru atriðin sem kosta lítið og skila mestu: - Byrjaðu að flytja. Pakkaðu niður fötum og dóti sem þú þarft ekki næstu vikurnar. Léttari eign virkar stærri og bjartari. - Þrífðu – og svo aðeins meira. Sérstaklega gler og glugga. Skítugt gler lætur kaupanda líða eins og illa hafi verið hugsað um húsið og að það sé kominn tími á að endurnýja gluggana. - Endurnýjaðu gömul og gulnuð rofa og tengla. Ódýrt, tekur stuttan tíma og sést strax á myndum. - Málaðu þar sem sést verulega á veggjum. Ekki alla íbúðina – bara þar sem þess er þörf.

Frítt verðmat á þinni eign